Published On Oct 19, 2021
EITT ANDARTAK
Örlygur Smári / Hera Björk & Valgeir Magnússon
Hvað heldur í mig
Hvaða ótti læðist inn
Finn hvernig efinn flæðir inn í huga minn
Ég veit þú stendur með mér
Ég veit það er ég sef
Ég veit að það er ég sem þarf að taka næsta skref
Innra með mér stöðugt
og gafst mér sjaldan frið
þú varst alltaf mér hjá
Þar til ég fór að sjá
að nú get ég tekið við
Eitt lítið andartak
Ég heyri vængjaþyt
Lítið andartak
sé lífið breyta um lit
Eitt lítið augnablik
Og það opnast nýjar dyr
Nú vel ég nýja leið
Stíg inn í ljósið
Finn að birtan læðist inn
Finn hvernig orkan flæðir inn í huga minn
Nú sé ég allan heiminn
Nú sé ég hvert ég fer
Og nú finn ég hvernig hjartað hamast um í brjósti mér
Innra með mér varstu
Og gafst mér engan grið
Þú varst alltaf mér hjá
Þar til ég fór að sjá
og nú hef ég tekið við
Eitt lítið andartak
Ég heyri vængjaþyt
Lítið andartak
sé lífið breyta um lit
Eitt lítið augnablik
Og það opnast nýjar dyr
Nú vel ég nýja leið
Nýja leið
Ég fer nýja leið
og sé lífið breyta um lit
Ég grýp mitt augnablik
Ég sé opnast mínar dyr
Ég hef valið mína leið