Freyja - Magnús Þór Sigmundsson og Fjallabræður
Lára Hanna Einarsdóttir Lára Hanna Einarsdóttir
3.21K subscribers
350,430 views
989

 Published On Nov 21, 2010

Heimildamyndin Maybe I should have - frumsýnd í janúar 2010.
.
Freyja

Fyrirgefðu mér
undir fótum ég fyrir þér finn
ég man
þú varst mín
hér eitt sinn.

Kæra Freyja mín
á ég skilið að eiga þig að
eftir að hafa þér
afneitað?

Ég seldi þig
fiskinn í sjónum og fjöreggin mín
grundirnar, fjöllin og vötnin þín
fyrir hvað?

Já, ég seldi þig
skelina, legginn og manndóminn
skildi við fjallkonuna
gulllin mín -- fyrir hvað?

Fyrirgefðu mér
ég fyllti upp í dali með fjöllunum
ég heyrði ekki söng þinn og seið
mér varð á.

Já, ég skammast mín
er þú sál mína særir til þín
þar sem tár þinna jökla og fjallasýn
kveðast á.

Já, ég seldi þig,
fiskinn í sjónum og fjöreggin mín
grundirnar, fjöllin og vötnin þín
fyrir hvað?

Já, ég seldi þig
skelina, legginn og manndóminn
skildi við fjallkonuna
gulllin mín -- fyrir hvað?

Kæra Freyja mín,
á ég skilið að eiga þig að
eftir að hafa þér
afneitað?

Höfundur: Magnús Þór Sigmundsson

show more

Share/Embed